Eng Tab

Greining: Grein


Rættist ágætlega úr sumrinu hjá Icelandair

Mikilvægustu mánuðir Icelandair, júlí og ágúst, virðast hafa verið góðir hjá félaginu skv. tilkynningu fyrr í dag. Þetta á sérstaklega við um áætlunarflugið. Icelandair birti í dag framlegðartölur fyrir júlí og flutningatölur fyrir ágúst ...


UM ÞJÓNUSTUNA

Hér á síðunni er að finna yfirlit um greiningarefni sem IFS greining hefur unnið og látið sína viðskiptavini hafa. Til að fá fullt aðgengi að greiningum þarf að hafa samband við IFS. Greiningarefni er þó aðeins ætlað þeim sem eru með sérstakan greiningarþjónustusamning við IFS.

Greiningarþjónustan byggir á greiningarefni, greiningarfundum og aðgengi að sérfræðingum IFS. Á margan hátt má líkja þessari þjónustu við útvistun á greiningarvinnu eða sem stuðningi við þá vinnu sem til staðar er.

Hjá IFS starfar öflugt teymi sérfræðinga við greiningu á efnahagsmálum, skuldabréfum, hlutabréfum og ýmsum öðrum mörkuðum.

Greiningarnar eru kaupendadrifnar (e. buy-side) og áhersla lögð á sjálfstæði, óhæði og fagmennsku.

Viðskiptavinir IFS greiningar eru fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir, fjárfestingarfélög og stórir fjárfestar.

IFS vinnur jafnframt ýmsar sértækar greiningar fyrir sína viðskiptavini s.s. verðmöt fyrirtækja, áhættumöt og verðmöt afleiðusamninga, atvinnugreinaúttektir o.s.frv.