16. nóv. 2018 - 09:41
Verðbólguspá fyrir nóvember 2018
Tólf mánaða verðbólga 3,3% í nóvember gangi spáin eftir IFS spáir 0,3% hækkun verðlags í nóvember 2018 milli mánaða og hækkar hún aðeins frá bráðabirgðaspánni sem gerðir ráð fyrir 0,2% hækkun verðlags í nóvember. Gangi spáin eftir hækkar tólf mánaða verðbólga úr 2,8% í 3,3%. Tólf mánaða takturinn hækkar nokkuð milli mánaða og er það vegna þess að það dettur út verðhjöðnunar- mánuður í nóvember í fyrra upp á -0,16% og kemur 0,3% verðbólgu-mánuður nú í staðinn. Undanfarna þrjá mánuði hækkar verðlag um 1,11% eða um 4,5% á ársgrundvelli. Hagstofan birtir verðbólgutölur fimmtudaginn 29. nóvember 2018...