22. feb. 2012 - 08:06
Morgunpóstur 22. febrúar 2012
Jafnvel þótt tekist hafi að semja um annan björgunarpakka fyrir Grikkland vofir skuldavandinn enn yfir Evrópu. Í gær tókst, eftir sjö mánaða samningatímabil, að semja um 130 m.EUR pakka fyrir Grikki. Markaðsaðilar hafa þó áhyggjur að þessi nýjasti plástur á skuldasárið geti losnað. Hættan á því að ríkið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar sé enn talsverð. Stefnt er að því að skudlir þjóðarinnar verði um 120% af landsframleiðslu árið 2020. Aðilar á markaði hafa hinsvegar bent á að verði vöxtur þjóðarinnar aðeins 0,5% undir markmiðum leiði það til þess að skuldahlutfall þjóðarinnar verði 127% árið 2020.
