Áhrif vaxtadóms á Haga
IFS vill benda á að nýfallinn dómur um gengisdóm Hæstaréttar mun hafa jákvæð áhrif á virði Haga. Þann 8. desember var tilkynnt um að Hagar fengju endurgreiðslu vegna endurreiknings á gengistryggðum lánum félagsins. Nam upphæðin rúmum 500 milljónum króna. Þeirri upphæð var nýtt til niðurgreiðslu á láni hjá félaginu. Með nýföllnum dómi má ætla að önnur greiðsla muni berast félaginu. Ekkert er vitað um hve há sú fjárhæð getur orðið. Engin tilkynning hefur borist frá Högum sjálfum varðandi áhrif dómsins á félagið. IFS hefur engar forsendur til að áætla hver upphæð endurgreiðslu getur orðið. Til glöggvunar á hve mikil áhrif endurgreiðslu á virði félagsins geta orðið má greina frá því að séu vaxtaberandi lán félagsins lækkuð um 500 milljónir króna eykst virði félagsins um 3%. Það skal ítrekað að sú fjárhæð sem notuð er hér er eingöngu notuð sem dæmi.
